Stikan Map

Leiðbeiningar

Svona notarðu Stikan Map · skjámyndir úr appinu á iPhone; á Android er útlitið það sama

Stikan Map er hálendiskort sem geymir allt á tækinu: kort, örnefni, leit og leiðarval. Það virkar því jafnt uppi á Sprengisandi og inni í Þórsmörk, þar sem ekkert símasamband er. Þegar net næst sækir appið nýjustu færð og veður og geymir þau með tímastimpli.

1. Fyrsta ræsing

Þegar nýrri kortagögn koma út spyr appið einu sinni hvort þú viljir sækja þau. Aðeins breyttu skrárnar eru sóttar.

Kort af Landmannalaugum með örnefnum, vegum og ám
Landmannalaugar: örnefni, F-vegir, slóðar og ár
Sérstaða

2. Kortið og örnefnin

Grunnkortið er landakort með skyggðu landslagi og hæðarlínum. Örnefnin koma úr IS 50V frá Landmælingum Íslands, þúsundir fjalla, dala, áa, vatna, jökla og bæja, öll á íslensku og öll án nets.

  • Klíptu til að þysja og dragðu til að færa kortið.
  • Haltu fingri á kortinu í 2 sekúndur til að sjá hnit og hæð staðarins.
  • Í Kort-spjaldinu velurðu Landakort, Götukort (fyrir bæi) eða Veðurkort.
  • Vegir eru teiknaðir eftir vægi: þjóðvegir sterkast, svo aðrir vegir, F-vegir, slóðar og gönguleiðir.
Leit að Landmannalaugum sýnir lind, tjaldsvæði, skála og heimilisfang
Ein leit, fjórar tegundir niðurstaðna

3. Leit án nets

Ýttu á leitarreitinn efst og byrjaðu að skrifa. Leitin fer í gegnum örnefni, bæi, götur, heimilisföng, skála, tjaldsvæði og áfangastaði, allt á tækinu sjálfu.

  • Hver niðurstaða sýnir tegund og sveitarfélag, svo auðvelt er að greina á milli staða með sama nafni.
  • Veldu niðurstöðu til að fljúga þangað. Örvatáknið í leitarreitnum reiknar leið á staðinn.
Sérstaða

4. Áfangastaðir og lög

Á kortinu eru um 1.550 áfangastaðir: fossar, hverir, hellar, vitar, kirkjur, söfn og útsýnisstaðir, auk skála, tjaldsvæða, lauga, bensínstöðva og verslana. Hver flokkur hefur sína lögun og lit, svo táknin þekkjast líka án litasjónar.

  • Opnaðu Kort neðst. Stjarnan kveikir og slekkur á öllum áfangastöðum í einu.
  • Undir Áfangastaðir hakarðu við þá flokka sem þú vilt sjá. Undir Örnefni velurðu örnefnaflokka.
  • Önnur lög: slóðar (jeppi), gönguleiðir, sprungusvæði á jöklum og þrívíð hús.
  • Haltu inni á tákni í spjaldinu til að sjá hvað það sýnir. Skýringar eru líka í Valmynd.
  • Íshellar fá sérstaka viðvörun: þeir breytast ár frá ári og geta hrunið.
Kort-spjaldið með lögum og hakalista áfangastaða
Kort-spjaldið: lög og áfangastaðir
Áfangastaðir við Landmannalaugar: hverir, skálar, tjaldsvæði og útsýnisstaðir
Hverir, skálar og útsýnisstaðir við Laugar
Sérstaða

5. Veður og færð

Færð Vegagerðarinnar og veður Veðurstofunnar á einu korti. Opnaðu Veður og færð neðst og kveiktu á Veður, Færð og Viðvaranir.

  • Veðurstöðvar sýna hita og vind. Ýttu á stöð til að sjá mælingar og staðaspá.
  • Færð litar vegina eftir ástandi sem Vegagerðin skráir, t.d. hálku, ófærð og lokanir, og sýnir vegavinnu og atvik.
  • Viðvaranir sýna gular, appelsínugular og rauðar viðvaranir í gildi og þær sem eru væntanlegar.
  • Veðurkortið sýnir staðaspá Veðurstofunnar fyrir næstu daga.

Án nets sýnir appið síðustu gögn sem náðust, alltaf með tíma, svo þú veist hversu gömul þau eru. Opnaðu appið áður en þú ferð úr sambandi.

Ísland með hitastigi á veðurstöðvum og færð á vegum
Hiti, vindur og færð um allt land
Veðurviðvaranir í gildi og væntanlegar
Veðurviðvaranir
Leið frá Landmannalaugum í Eldgjá um F208 með tveimur vöðum merktum
Landmannalaugar–Eldgjá um F208: vöðin merkt og færð á leiðinni
Sérstaða

6. Leiðarval: F-vegir og vöð

Leiðin er reiknuð á tækinu, án nets, og tekur mið af aðstæðum á hálendinu:

  • F-vegir eru aðeins notaðir ef þú kveikir á þeim.
  • Forðast vöð leitar leiða framhjá óbrúuðum ám.
  • Fylgja færð sneiðir hjá vegum sem Vegagerðin skráir lokaða eða ófæra. Slökktu á því til að skipuleggja ferð fram í tímann, t.d. um hálendið að vetri.
  • Vöð eru merkt á leiðinni og listuð með nafni vegar, ásamt færð á hverjum kafla.

Opnaðu Leið og ferlar, veldu upphafsstað (eða staðsetningu þína) og áfangastað. Þú getur líka ýtt á staði á kortinu.

Metið hvert vað á staðnum. Vatnsmagn breytist eftir veðri, árstíma og tíma dags.

7. Leiðsögn og ferlar

  • Hefja leiðsögn sýnir beygjuborða, hraða, komutíma og færð framundan. Leiðsögnin er án raddar, svo hafðu skjáinn þar sem þú sérð hann.
  • Ferlar: undir Ferlar tekurðu upp ferðina meðan appið er opið. Ferillinn vistast með vegalengd og tíma og þú getur deilt honum sem GPX-skrá.
Leiðsögn með beygjuborða, hraða og komutíma
Leiðsögn
Vistaður ferill með vegalengd og tíma
Vistaður ferill
Skálar í þrívídd: Básar og Skagfjörðsskáli
Básar og Skagfjörðsskáli í þrívídd

8. Þrívídd

Ýttu á 3D til að halla kortinu og sjá landslagið í þrívídd, byggt á hæðarlíkani Landmælinga Íslands. Margir fjallaskálar eru teiknaðir sem þrívíð hús. Ýttu á skála með þrívíðri mynd til að sjá hann nær.

Þrívíddin er enn í þróun og getur verið þung á eldri tækjum.

Neyðarspjald með hnitum og hnappi til að hringja í 112
Hnit í tveimur sniðum og 112
Sérstaða

9. Í neyð

Í Valmynd efst er rauði hnappurinn Í neyð: hringdu í 112. Hann opnar spjald með:

  • Hnitunum þínum í tugabroti og í gráðum og mínútum, eins og Neyðarlínan og björgunarsveitir biðja um.
  • Nákvæmni og hæð GPS-mælingarinnar og hversu gömul hún er.
  • Hnöppum til að hringja í 112 og afrita hnitin, t.d. í SMS.

GPS virkar án netsambands, svo hnitin eru rétt þó að ekkert símasamband sé.

10. Góð ráð fyrir ferðina

Stikan Map er ekki öryggistæki. Kortið er til leiðbeiningar og gögnin geta verið röng eða gömul. Fylgdu alltaf merkingum og lokunum á staðnum. Akstur utan vega er bannaður. Sjá fyrirvara og skilmála.

Spurningar eða ábendingar?

Í appinu: Valmynd › Senda ábendingu. Eða sendu póst á [email protected].