Stikan Map
Merki Stikan Map: útlínur Íslands með leið og staðsetningarnál

Hálendiskort sem virkar án nets

Stikan Map er íslenskt hálendis- og ferðakort fyrir síma. Kortin eru geymd á tækinu, svo þau virka þar sem ekkert símasamband er.

Í prófun á Google Play · iOS væntanlegt
Fá appið á Google Play
1

Allt landið án nets

Kort, örnefni, leit og leiðarval eru á tækinu sjálfu. Ekkert hættir að virka þegar sambandið dettur út, hvorki uppi á heiði né inni í dal.

2

Færð og veður á einu korti

Færð Vegagerðarinnar og veður og viðvaranir Veðurstofunnar saman á kortinu. Síðustu gögn fylgja með upp á hálendið, merkt með tíma.

3

Gert fyrir hálendið

F-vegir aðeins ef þú velur þá, vöð merkt, örnefni úr IS 50V og þrívíðir skálar og landslag (3D enn í þróun og nokkuð þungt í keyrslu).

Stikan Map á Google Play

Í prófun. Stikan Map er komið á Google Play og er í prófun fyrir Android. Allir geta tekið þátt í tveimur skrefum:

  1. Skráðu þig í prófendahópinn með Google-reikningnum sem er á símanum: groups.google.com/g/stikanmap-testers („Join group“).
  2. Opnaðu prófunarsíðuna á Google Play, ýttu á „Become a tester“ og sæktu appið.

Opna á Google Play

Varstu með beta-útgáfuna sem var sótt af þessari síðu? Fjarlægðu hana fyrst; kortin þarf þá að sækja aftur í nýja appinu.

Skjámyndir

Skjámyndir úr appinu (beta-útgáfa á iPhone; útlitið er það sama á Android).

Landakort með veðri og færð
Landakort með veðri og færð
Skálar í 3D: Básar og Skagfjörðsskáli
Skálar í 3D: Básar og Skagfjörðsskáli
Veður og færð frá Veðurstofu og Vegagerð
Veður og færð frá Veðurstofu og Vegagerð
Veðurviðvaranir í gildi og væntanlegar
Veðurviðvaranir í gildi og væntanlegar
Veðurkort með spá næstu daga
Veðurkort með spá næstu daga
Leiðarval án nets, með færð á leiðinni
Leiðarval án nets, með færð á leiðinni
Leiðsögn: beygjuborði, hraði og komutími
Leiðsögn: beygjuborði, hraði og komutími
Vistaður ferill með vegalengd og tíma
Vistaður ferill með vegalengd og tíma
Hnitin þín og hringja í 112
Hnitin þín og hringja í 112

Hvað gerir appið?

Síðustu veður- og færðargögn eru geymd á tækinu og sýnd með tíma þegar netið vantar. Appið er á íslensku og ensku.

Lesa leiðbeiningarnar

Fyrirvarar

Stikan Map er ekki öryggistæki. Kortið er til leiðbeiningar. Aðstæður á hálendinu breytast hratt; kynntu þér færð, veður og lokanir áður en lagt er af stað og fylgstu með aðstæðum sjálf(ur) á leiðinni.

Jöklar og sprungur: sprungusvæði á kortinu eru leiðbeinandi, ekki trygging fyrir öruggri leið. Farðu ekki á jökul án þekkingar, búnaðar og leiðsagnar.

Færð og veður: gögnin koma frá Vegagerðinni og Veðurstofunni og geta verið röng, gömul eða ekki náð til staðbundinna aðstæðna. Án nets sýnir appið síðustu gögn sem náðust, með tíma.

Vöð: vöð á kortinu eru úr OpenStreetMap. Vatnsmagn breytist eftir veðri, árstíma og tíma dags. Metið hvert vað á staðnum.

Leiðarval: leiðin er reiknuð úr opnum gögnum og getur legið um lokaða, ófæra eða ranga vegi. Fylgdu alltaf merkingum og lokunum á staðnum.

Staðir: staðsetning skála og tjaldsvæða er úr OpenStreetMap. Athugaðu aðgengi og leyfi áður en þú ferð.

Notkun á eigin ábyrgð: appið er notað á eigin ábyrgð og engin ábyrgð er tekin á leiðsögn, gögnum eða tjóni. Lestu notkunarskilmálana.

Í neyð: hringdu í 112.

Heimildir og leyfi

Leyfin: ODbL · CC BY 4.0. Stikan Map tengist ekki þessum stofnunum og er ekki á þeirra vegum.

Samband

Spurningar, villur eða ábendingar: [email protected]

Á þessari vefsíðu eru engar vafrakökur og engin rakning.